Ykkar útlit, ekki okkar
Litir, merki, bakgrunnur, letur og allur texti eftir ykkar höfði. Hver viðburður fær sína eigin slóð.
Nafnlausar spurningar fyrir viðburði
Gestir skanna QR-kóða og senda inn spurningu úr símanum. Þið samþykkið og hún birtist á stóra skjánum, í litum, letri og merki fyrirtækisins.
Skrifaðu spurningu í símann og sjáðu hana birtast á skjánum. Veldu útlit til að sjá hvernig sama kerfið lagar sig að ólíkum vörumerkjum.
Skannaðu QR-kóðann og sendu inn nafnlausa spurningu.
0 spurningar hafa borist
Spurning úr salnum
Takk fyrir!
Spurningin bíður samþykkis…
Þrjú einföld skref, og gestirnir þurfa ekkert að kunna.
QR-kóðinn á skjánum opnar síðu í símanum. Ekkert app og engin innskráning.
Allar spurningar fara fyrst til fundarstjóra sem samþykkir, lagfærir eða hafnar. Ekkert birtist óvænt.
Samþykktar spurningar birtast samstundis. Setjið eina í kastljós þegar henni er svarað.
Litir, merki, bakgrunnur, letur og allur texti eftir ykkar höfði. Hver viðburður fær sína eigin slóð.
Engin innskráning og engar persónuupplýsingar. Spurningum er eytt sjálfkrafa eftir viðburðinn.
Álagsprófað með 700 símum samtímis. Svarið berst á innan við tíunda hluta úr sekúndu.
Allt viðmótið er á vandaðri íslensku, eða á ensku fyrir alþjóðlega gesti.
Dragið fram spurninguna sem verið er að svara og sýnið hve margar spurningar hafa borist.
Þið sendið merkið og litina. Við setjum upp, prófum með ykkur og getum stýrt spurningum á viðburðinum.
Verð fer eftir umfangi. Segðu okkur frá viðburðinum og við sendum tilboð.
Fyrir fundi og minni viðburði
Fyrir ráðstefnur og viðburði með viðskiptavinum
Við sjáum um allt
Nei. Þeir skanna QR-kóðann og síðan opnast í vafranum í símanum. Engin innskráning.
Já. Við biðjum ekki um nafn, netfang eða innskráningu og geymum engar IP-tölur. Spurningar eru aðeins geymdar á meðan viðburðurinn stendur og þeim er eytt sjálfkrafa eftir 12 klukkustundir.
Ekkert birtist á skjánum fyrr en fundarstjóri hefur samþykkt það. Hann getur líka lagfært orðalag eða hafnað spurningunni.
Við höfum álagsprófað kerfið með 700 símum sem opna síðuna á einni mínútu og 200 spurningum á hálfri mínútu, án villna.
Tölvu með vafra tengda skjávarpa eða skjá, og nettengingu fyrir gestina, hvort sem er þráðlaust net eða farsímanet.
Já. Hver viðburður getur verið á íslensku eða ensku, líka stjórnborð fundarstjóra.
Segðu okkur frá viðburðinum og við sendum tillögu að útliti og verði.
hallo@somebodyasks.com